
Hvað á að flokka?
Allan timburúrgang er æskilegt að flokka í tvo flokka:
Ómeðhöndlað timbur sem er auðvelt í endurvinnslu og má endurnýta á margvíslegan hátt.
Meðhöndlað timbur, málað eða húðað sem er erfiðara í endurvinnslu, þar sem málning, fúavarnerefni eða plasthúðun rýrir mjög möguleikana á endurvinnslu timbursins.
Hvar á að losa ?
Heimili:
Á Eyjafjarðarsvæðinu er nokkuð víða gámar til losunar á timbri. Lista yfir gáma/gámasvæði má finna hér.Rekstraraðilar:
Móttaka timburs frá rekstraraðilum er á urðunarstaða Flokkunar á Glerárdal.
Endurvinnsla á timbri
Hreint timbur er kurlað niður með tætara og notað í jarðgerð lífræns úrgangs. Í timbrinu er hátt hlutfall kolefnis og þess vegna er það mikilvægt til mótvægis við hátt hlutfall köfnunarefnis í slátur- kjöt- og fiskúrgangi. Aðeins hreint timbur hentar sem stoðefni við jarðgerð þar sem fúavarnarefni og önnur meðhöndlun á timbrinu dregur almennt mjög úr starfsemi örvera og inniheldur efni sem draga úr nýtingarmöguleikum á moltunni, sem myndast við jarðgerðina.
Einnig er kurlað timbur m.a. notað sem þekjuefni á urðunarstöðum, bæði sem millilag og við endanlegan
frágang. Með notkun timburkurls má draga verulega úr foki úrgangsefna, aðsókn fugla og ólykt. Ennfremur er timburkurl notað
í reiðvegi, göngustíga, trjábeð o.fl.










