Hvað á að flokka?
Spilliefni eru efni sem skaðleg eru umhverfinu. Þau geta borist með vatni og andrúmslofti út í náttúruna. Sum spilliefni safnast upp í fæðukeðjunni og eru þvi sérlega skaðleg. Spillefnum ber samkvæmt lögum að skila til eyðingar.
Hvað eru spilliefni ?
Eftirfarandi upptalning er aðeins til upplýsinga en er alls ekki tæmandi:
Heimili:
Ýmis konar hreinsiefni, málning, lakk, lím, bón, leysiefni t.d. terpentínaogþynnir, lyf, rafhlöður, kvikasilfur í hitamælum, stíflueyðir, skordýraeitur, úðabrúsar og ýmsar vöru fyrir ökutæki t.d. frostlögur, olíur, rafgeymar, tjöruleysir, bón og ýmis þrifefni.
Rekstaraðilar:
Í fyrirtækjum falla til flest þau spilliefni sem finnast á heimilum en þar fyrir utan koma ýmis önnur spilliefni frá rekstri eins og t.d. sýrur, basar, framköllunarvökvar, prentlitir, formalín, klórmenguð efni og efni frá rannsóknarstofum. Spilliefni frá heilbrigðisstofnunum t.d. nálar og hnífar (í lokuðum umbúðum), umbúðir undan skaðlegum efnum og sóttmengaður úrgangur.
Hvert skal skila spilliefnum?
Tekið er á móti spilliefnum frá fyrirtækjumn hjá Sagaplast ehf./Endurvinnslunni hf., Réttarhvammi 3 Akureyri. Einnig eru merkt kör undir spilliefni staðsett á gámasvæðunum við Sandskeið á Dalvík og að Réttarhvammi 2 Akureyri.










