
Hvað á að flokka?
Áldósir, gler- og plastflöskur eru skilagjaldsskyldar og er greitt fyrir að skila þessum umbúðum.
Hvernig á að flokka?
Mikilvægt er að vanda flokkun og talningu þessara umbúða og er það forsenda þess að hægt sé að endurvinna þær. Þegar komið er með umbúðirnar til Sagaplast ehf./Endurvinnlunnar hf. skal vera búið að flokka þær niður í glerflöskur, plastflöskur og dósir. Hjá Endurvinnslunni er hver flokkur talinn vandlega og greitt fyrir þann stykkjafjölda sem skilað er hverju sinni.
Hvert á að skila?
Umbúðum í þessum flokki á að skila til Endurvinnslunnar hf./Sagaplast ehf.við Réttarhvamm 3, Akureyri.
Eftirtaldar umbúðir skilgreinast sem skilagjaldsskyldar umbúðir:
Áldósir, plast- og glerflöskur fyrir gosdrykki, orkudrykki og tilbúna ávaxtasafa.
Glerflöskur og áldósir fyrir bjór.
Glerflöskur fyrir áfengi, bæði létt og sterk vín.
Glerflöskur og áldósir fyrir bjór.
Glerflöskur fyrir áfengi, bæði létt og sterk vín.
Á hvaða umbúðum er ekki skilagjald?
Á fjölmörgum plast og glerumbúðum er ekki skilagjald. Þeim skal samt safnað saman og hægt er að skila þeim til
Endurvinnslunnar hf./Sagaplast ehf. (plastumbúðir sér og gler sér). Þessar umbúðir eru t.d. undan mjólkurdrykkjum, ávaxtaþykkni,
tómasósu, matarolíu, þvotta- og mýkingarefnum og glerkrukkur undan hinum ýmsum matvælum.
Athuga skal að allar umbúðir skulu vera hreinar og án matarleifa.
Til baka










