Flokkun Eyjafjörður ehf

Úrgangsstýring

Bylgjupappi

Hvað á að flokka?

Allar umbúðir úr bylgjupappa eins og pappakassa, pitsukassa og ýmis konar hlífðarumbúðir.

Bylgjupappi er auðþekkjanlegur á bylgjunum sem sjást greinilega í brúnum hans. 

Hvað þarf að fjarlægja áður en bylgjupappa er skilað?

Fjarlægja þarf allar stuðningsumbúðir úr frauðplasti eða pappamassa og alla plastpoka eða plastfilmu.  Einnig þarf að fjarlægja allar matarleifar t.d úr pitsukössum.

Hvar á að losa?

Heimili:

Flest sveitarfélögin á Eyjafjarðarsvæðinu hafa gáma/gámasvæði þar sem hægt er að losa bylgjupappa, en einnig er tekið á móti þessum úrgangsflokki hjá Sagaplasti ehf./Endurvinnslunni hf. Réttarhvammi 3, Akureyri. Lista yfir staðsettningu gáma/gámasvæða á Eyjafjarðarsvæðinu má finna hér.

Rekstraraðilar:

Sagaplast ehf. Réttarhvammi 3, Akureyri tekur á móti bylgjupappa frá rekstraraðilum.

Enduvinnslutunnan og Græna tunnan

Bylgjupappi má einnig fara í "endurvinnslutunnuna" frá Gámaþjónustunni hf. eða í "grænu tunnuna" frá Íslenska Gámafélaginu ehf.

Auglýsingar

Flokkun Úrgangs
Lög og reglur
Áhugaverðir tenglar
Molta
Fenur
Endurvinnslukortid

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning