
Hvað á að flokka?
Fernur og umbúðir úr sléttum pappa skulu flokkaðar sérstaklega í einn flokk.
Í þennan flokk má setja fernur og umbúðir úr sléttum pappa. Hér er um að ræða umbúðir undan mörgum vöruflokkum t.d fernur undan mjólkurvörum og ávaxtasafa, umbúðir undan morgunkorni, kexi, sælgæti og fjölmörgum öðrum vörum.
Við flokkun er æskilegt að brjóta umbúðirnar saman, þá taka þær minna pláss í fluttningi og
þannig er auðveldara að geyma þær milli losana.
Hvað má ekki fara með?
Allt plast og plastpoka sem kunna að vera í kössum eða eru hluti af þeim þarf að fjarlægja og flokka með plasti. Einnig á að fjarlægja allar matarleifar úr umbúðum og skola fernurnar vel.
Hvar á að losa?
Fernur og sléttan pappa skal losa í gáma merkta þessum úrgangsflokki. Í flestu sveitarfélögum eru
staðsettir gámar/gámasvæði sem taka á móti þessum úrgangsflokki, en einnig er hægt að losa hann í gáma viðSagaplast ehf./Endurvinnsluna hf. við Réttarhvamm 3, Akureyri. Lista yfir staðsettningu
gáma/gámasvæða á Eyjafjarðarsvæðinu má finna hér.
Pappi í framangreindum flokki má einnig fara í "endurvinnslutunnuna" frá Gámaþjónustunni hf. eða í "grænu tunnuna" frá Íslenska Gámafélaginu ehf.










