Flokkun Eyjafjörður ehf

Úrgangsstýring

Endurvinnslustöðvar



Dagblöð/Fernur/Pappi

Sagaplast ehf. sér um móttöku á dagblöðum, tímaritum og skrifstofupappír, bylgjupappa, fernum og sléttum pappa á Eyjafjarðarsvæðinu.

Spilliefni

Sagaplast ehf. sér um móttöku spilliefna (rafhlöður, rafgeymar, olíuafgangar, málingaafgangar ofl.) á Eyjafjarðarsvæðinu.

Sagaplast ehf.
Réttarhvammi 3, Akureyri
sími: 461 2838

Opið virka daga frá 10-17 og fimmmtudaga 10-19

Umbúðir með skilagjaldi

Endurvinnslan hf. rekur móttökustöð fyrir einnota umbúðir með skilagjaldi. Mikilvægt er að flokka í eftirfarandi flokka:

  • Dósir
  • Plastflöskur
  • Gler
Endurvinnslan hf.
Réttarhvammi 3, Akureyri
Sími: 461 2838


Opið virkadaga frá 10-17 og fim. 10-19

 Fatnaður og klæði

Öllum fatnaði og vefnaðarvöru eins og gluggatjöldum, áklæði, teppum, sængurfötum svo eitthvað sé nefnt skal skila til Hjálpræðishersins eða Rauða krossins á Akureyri. Á báðum stöðum eru gámar og einnig er hægt að skila til þeirra á hefðbundum opnunartímum.

Hjálpræðisherinn, Hertex nytjamarkaður
Hrísalundi 1 b, Akureyri 
Sími: 462 4433 / 661 8415

Opið þriðjudaga og miðvikudaga frá kl. 13-18.

Föstudaga frá Kl. 10-18.

Rauði krossinn
Víðilundi 2, Akureyri
Sími: 461 2374

Opið alla virka daga frá kl. 8-16

Nytjamarkaður

Öllum húsbúnaði, raftækum og öðru því sem fólk vill að fari í endurnotkun er hægt að skila í nytjagáma á gámasvæðunum á Akureyri og í Dalvíkurbyggð. Einnig er hægt að skila beint til Hjálpræðihersins eða Fjölsmiðjunar á Akureyri en þar er á báðum stöðum rekinn nytjamarkaður.

Fjölsmiðjan
Óseyri 1, Akureyri
Sími: 414 9380

Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 10-16

Hjálpræðisherinn, Hertex nytjamarkaður
Hjalteyrargötu 2, Akureyri
sími: 462 4433

Opið þriðjudaga og föstudaga frá kl. 10-18.


Málmar og brotajárn

Hringrás ehf. Ægisnesi 1, Akureyri tekur á móti málmum og brotajárni til endurvinnslu.

Hringrás ehf.
Ægisnesi 1, Akureyri
Sími: 462 4281

Opið: mánudaga.- fimmtudaga. 8-12/13-18

Föstudaga 8-12/13-16 

  

Slátur- kjöt- og fiskúrgangur 

Slátur- kjöt -og fiskúrgang skal losaður hjá jarðgerðarstöð Moltu ehf. á Þveráreyrum í Eyjafjarðarsveit. Athuga að aðeins er hægt að losa kjöt- og sláturúrgang frá viðurkenndu sláturhúsi til Moltu og þá aðeins sláturúrgang sem flokkast sem hættulítill eða úr áhættuflokki 3. Þessi úrgangur er notaður til moltugerðar ásamt garðaúrgangi grasi, hrossataði, pappír og timbri.  Moltan er síðan nýtt til uppgræðslu m.a. á urðunarstaðnum. Fyrirhugað er að moltugera einnig lífrænan heimilisúrgang frá þéttbýli.

Molta ehf.
Furuvöllum 1, Akureyri
Sími: 462 4035
Heimasíða: www.molta.is
Tekið er á móti þessum úrgangi samkvæmt samkomulagi. Hafið samband í síma: 899 5343 eða 898 8405. Einnig er hægt að senda tölvupóst á: vakt@molta.is

Auglýsingar

Flokkun Úrgangs
Lög og reglur
Áhugaverðir tenglar
Molta
Fenur
Endurvinnslukortid

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning